Sundaborg 9: Opið til 15:00
Fullt hús af próteini, kreatíni og pre workout blöndum - Við tökum vel á móti þér !

Cream of Rice Uppskrift

Innihaldsefni

Eldaðu Cream of Rice

Leiðbeiningar

  1. 1Veldu þér rúmgóða skál eða box sem er þæginlegt að hræra saman vatn og Cream of Rice án þess að allt sullist út um allt.
  2. 2Hitaðu vatn í hraðsuðukatli (eða í pott)
  3. 3Vigtaðu það magn sem þú vilt setja fá þér af Cream of Rice í skálina (í þessari uppskrift munum við nota 60 gr.) Hlutfallið af vatni út á Cream of Rice er ca. 3:1 Sem þýðir að fyrir 60 gr. af Cream of Rice þarf að setja um 180 gr. af heitu vatni. Ef þér finnst áferðin vera of þykk er hægt að bæta örlítið meira af vatni.
  4. 4Vigtaðu 180 gr. af heitu vatni út á Cream of Rice-ið. Ps. mundu að núllstilla vigtina áður en þú setur vatnið í skálina.
  5. 5Hrærðu saman með gaffli eða písk þangað til að áferðin verður eins og barnagrautur.

Undirbúið prótein sósuna:

Okkur finnst best að setja prótein sósu út á Cream of Rice-ið.

Leiðbeiningar

  1. 1Veldu skál, glas eða t.d. hristibrúsa sem er þæginlegt að nota til hræra í án þess að allt fari út um allt.
  2. 2Vigtaðu það magn af próteini sem þú vilt nota í skálina (í þessari uppskrift munum við nota 40 gr.) Okkur finnst best að nota ca. 10 gr. minna af vatni miðað við magnið af próteini. Ef þér finnst áferðin vera of þykk geturðu bætt örlítið af vatni við og hrært meira saman.
  3. 3Vigtaðu 30-35 gr. af vatni út í próteinið í skálinni, mundu að núllstilla vigtina áður en þú setur vatnið í skálina.
  4. 4Hrærðu saman með gaffli eða písk þangað til allt próteinið er blandað saman og áferðin verður mjúk eins og þykk sósa.

Hellið sósunni yfir:

Leiðbeiningar

  1. 1Hellið prótein sósunni yfir Cream of Rice-ið. Pro tip: Okkur finnst best að nota sleikju til að ná allri prótein sósunni úr skálinni.

Toppið og berið fram:

Hér koma okkar uppáhalds "toppings" á Cream of Rice,


Setjið 100 gr. af frosnum bláberjum yfir.

Stráið 20 gr. af All-bran yfir.

Dreypið 20 gr. af hnetusmjöri yfir.

Seinast en ekki síst - stráið sjávarsalti yfir (mikilvægt að okkar mati) !


Njótið vel í morgunmat, fyrir og/eða eftir æfingar eða sem millimál.


Svo er að sjálfsögðu hægt að breyta og bæta eins og ykkur hentar.


Pro tip:

Okkur finnst mjög gott að blanda öllu saman box (nema All Bran - það er sett út á rétt áður en það er borðað til að hafa það "crispy"), leyfa öllu að kólna aðeins á eldhúsborðinu áður en það er sett lok yfir og inn í ísskáp og borða svo kalt seinna um daginn eða jafnvel næsta dag !

Næringartafla

Skammtar1
Hitaeiningar (kcal)520
Fita (g)12
- þar af mettað (g)3
Kolvetni (g)65
- þar af sykur (g)10
Prótein (g)30
Trefjar (g)7