Description
PERFORMANCE FUEL frá TRAINED BY JP NUTRITION er allsherjar kolvetna formúla sem er tilvalin til þess að drekka á/eða í kringum æfingar til þess að hámarka úthald, styrk og fyllingu í vöðvum.
Performance Fuel inniheldur meðal annars kolvetna uppsprettu sem heitir Cluster Dextrin (HBCD – Highly Branched Cyclic Dextrin) sem er einstaklega hentug að taka á æfingum því það meltist mjög hratt og örugglega, veitir skjóta, góða og stöðuga orku og veldur lítið af hækkun á insúlíni.
Cluster Dextrin tæmist fljótt úr maganum og veldur þar af leiðandi mjög litlum ónotum/óþægindum í meltingarveginum.
Ef að þú ert að leita af meiri orku á æfingum – þá mælum við hiklaust með að prófa Performance Fuel.
Performance Fuel fæst í þremur frábærum bragðtegundum,
- Berry Burst
- Orange & Mango
- Pina Colada (stevia)