Vörulýsing
TURMERIC frá NATURES AID
TURMERIC hefur verið þekkt í aldanna raðir fyrir heilsueflandi eiginleika sína
TÚRMERIK (Curcuma Longa) hefur verið þekkt í aldanna raðir fyrir heilsueflandi eiginleika sína á mannslíkamann. TÚRMERIK er áhrifaríkt gegn hinum ýmsu kvillum og getur haft margskonar jákvæð áhrif á líkamsstarfsemina.
TÚRMERIK er eitt öflugasta andoxunarefnið á markaðnum en andoxunarefni eru m.a. nauðsynleg þar sem þau vernda líkama okkar fyrir sindurefnum og oxunarskaða. Virka innihaldsefnið kúrkúmín dregur úr sindurefnum auk þess sem það örvar andoxunarefni líkamans.
TÚRMERIK frá NATURES AID innheldur 200 mg af kúrkúmín ásamt 200 mg af öðrum öflugum efnum sem rótin inniheldur en þar er að finna yfir 200 efnasambönd sem geta verið okkur til hagsbóta. NATURES AID TURMERIC inniheldur því það besta af „báðum gerðum“.
TURMERIC hylkin eru án emískra bragðefna, litarefna og rotvarnarefna sem og laktósa-, ger- og glútenlaus.