Vörulýsing
Er á minnkum matarsóun vegna dagsetningar.
ATH. – Best fyrir dagsetning er – 05/23
ACTIVE LIVER frá NEW NORDIC
Lifrin er stærsti kirtill og aðal efnaskiptalíffæri líkamans
Lifrin sem er stærsti kirtill líkamans gegnir fjölmörgum hlutverkum og er jafnframt aðal efnaskiptalíffæri líkamans. Í raun er lifrin efnaverksmiðja sem starfar allan sólarhringinn því án hennar ætti engin brennsla sér stað í líkamanum. Að auki væri blóðrásin ekki eðlileg, hormónabúskapurinn færi úr jafnvægi, óhreinindi myndu safnast í blóði og ótal margt fleira færi úr skorðum ef að lifrin starfaði ekki sem skyldi.
ACTIVE LIVER inniheldur mjólkurþistil og ætiþistil sem lengi hefur verið þekkt fyrir heilsueflandi eiginleika sína. Í blöndunni er einnig kólín sem stuðlar að eðlilegum fituefnaskiptum, eðlilegri lifrarstarfsemi og eðlilegum efnaskiptum er varða amínósýruna hómósystein. Að auki inniheldur blandan túrmerik og svartan pipar sem vinna vel saman.
- Hentar 12 ára og eldri.
- Vegan, sykur,- mjólkur-, og glútenlaust.
- Active Liver er ein vinsælasta varan frá New Nordic á Íslandi.