Search
Close this search box.
FRÍ SENDING UM ALLT LAND!
Frír sendingarkostnaður þegar verslað er yfir 15.000 kr. eða meira
Tilboð mánaðarins!
Ný tilboð í hverjum mánuði.
Previous slide
Next slide

MICRONIZED CREATINE – 317 GR.

3.990 kr.

93 SKAMMTAR 43 kr./á skammt

In stock

Description

Hvað er Creatine Monohydrate?

Creatine Monohydrate er náttúrulegt efnasamband sem er aðallega geymt í vöðvum og, í minni mæli, í heilanum. Það er búið til úr þremur amínósýrum: glýsín, argínín og metíónín. Kreatín þjónar sem skjótur orkugjafi með því að hjálpa til við endurnýjun ATP (adenósín þrífosfat), sem er aðal orkuefni frumna, sérstaklega við æfingar sem krefjast mikillar orku á stuttum tíma.


Ávinningur Creatine Monohydrate:

Fyrir almenna notkun:

  1. Bætt Hugræn Starfsemi: Kreatín hefur verið tengt við bætt minni, andlega vinnslu og aukna orku fyrir hugann. Það getur nýst fólki sem upplifir andlega þreytu.
  2. Aukin Vöðvamassi: Jafnvel ef markmiðið er ekki að stækka vöðva getur kreatín hjálpað til við að viðhalda vöðvamassa með aldrinum.
  3. Minni Þreyta: Með því að auka orku á frumuþrepi getur kreatín hjálpað til við að minnka þreytu í daglegum athöfnum og bætt almenna orku.

Fyrir Íþróttafólk og þá sem æfa mikið:

  1. Bættur Styrkur og Kraftur: Kreatín styður við stuttar, sprengikraftshreyfingar með því að endurnýja ATP hratt, sem er nauðsynlegt við hreyfingar sem krefjast mikils styrks, eins og lyftingar eða spretti.
  2. Fljótari Endurheimt Vöðva: Kreatín getur dregið úr vöðvaskemmdum og bólgum eftir áreynslu, sem stuðlar að hraðari endurheimt.
  3. Stærri vöðvar: Kreatín dregur vatn inn í vöðvafrumur, sem eykur rúmmál þeirra og getur stuðlað að vöðvavexti.
  4. Bætt Þol við Hámarksátök: Þótt kreatín sé ekki beinn orkugjafi fyrir þolæfingar, nýtist það í lotu- og há-ákefðar æfingum (eins og HIIT) með því að styðja við endurteknar sprettlotur.

Til samans er Creatine Monohydrate mikið rannsakað, öruggt og áhrifaríkt bætiefni sem nýtist bæði þeim sem æfa af krafti og þeim sem stunda íþróttir með því að auka orku, styrk og endurheimt. Þetta er frábær viðbót fyrir þá sem vilja bæta líkamlega frammistöðu og almenna orku.

Innihaldslýsing

Gæti innihaldið – Mjólk, Egg, Glútein, Soja, Hnetur og Jarðhnetur

Innihaldsefni

 

 

Geymsluskilyrði – Geymið á þurrum og köldum stað.

Best fyrir – sjá dagsetningu á vöru.

Upprunaland – UK

Notkunarleiðbeiningar

Blandið einni skeið (3,4 gr.) út í 180 – 240 ml af vatni/djús/prótein/ pre-workout eða annan drykk með bragði, hrærið, hristið eða blandið vel í 30 sekúndur eða þar til duftið er alveg leyst upp.

 

Pro tip – Við mælum með að taka 5 gr. af kreatíni alla daga.

Skeið innifalin.

Algengar spurningar

Ég hef heyrt að ég þurfi að “hlaða” kreatín þegar ég byrja að taka það í fyrsta skipti eða eftir pásu, hvernig er best að gera það ? 

Það getur verið sniðugt að hlaða kreatínbirgðirnar fyrstu dagana. Þá tekurðu 5 gr., þrisvar – fjórum sinnum í dag, dreift yfir daginn, fyrstu 7 dagana. Eftir það tekurðu einn skammt (5 gr.) einu sinni á dag, alla daga (líka á þeim dögum sem þú æfir ekki).

Hinsvegar er þetta ekki nauðsynlegt, en við mælum með að hlaða kreatíni fyrstu 10 dagana með því að taka 10 grömm á dag af kreatíni, 5 gr. fyrir æfingu og 5 gr. eftir æfingu. Á hvíldardögum er hægt að taka 10 grömm saman – hvenær sem er yfir daginn.

Hvernig blanda ég kreatínið ? 

Kreatín er hreint- og bragðlaust efni og er þar af leiðandi ekkert sérstaklega gott eitt og sér út í vatn.
Við mælum með að blanda kreatín út í t.d. Pre Workout-ið fyrir æfingu, prótein shake-inn eftir æfingu eða út í annan drykk með góðu bragði (t.d. djús).

Þarf ég að taka Kreatín alla daga ? 

Já, við mælum með að taka kreatín alla daga – líka á þeim dögum sem þú æfir ekki.

Hvenær er best að taka kreatín ? 

Tímasetning á inntöku af kreatíni skiptir ekki mestu máli. Það er tilvalið að taka kreatín í kringum æfingar (hvort sem það er fyrir, á eða eftir) en ef það hentar ekki þá er hægt að taka það t.d. á morgnana.
Mestu máli skiptir að taka kreatín alla daga og auka vatnsinntöku.

Þarf að taka pásu á kreatíni ? 

Það er ekki nauðsynlegt. Kreatín er efni sem líkaminn framleiðir sjálfur ásamt því fáum við það úr ýmsum matvörum, þá helst frá rauðu kjöti.
Það er því óhætt að taka kreatín til lengri tíma en einnig er allt í lagi að taka pásur á nokkurra mánaða fresti í 2-4 vikur og byrja svo aftur.

Er til kreatín sem maður “vatnast” ekki af ? 

Kreatín getur aukið vatnsmagn inn í vöðvafrumum líkamans. Þetta er gott og þar viljum við hafa vatnið – inn í vöðvunum. Það gerir það að verkum að vöðvafrumurnar eru í betra vökvajafnvægi, þær verða tilbúnar í meiri átök á æfingum, ásamt meiri og hraðari endurheimt eftir æfingar.
Það er eðlilegt að þyngjast örlítið þegar maður byrjar á kreatíni.
Ef þú ert að upplifa að “vatnast” of mikið mælum við með að auka vatnsinntöku (því vatn skolar út vatni) og fylgjast með söltum- og steinefnum. Of lítið af söltum, steinefnum og vatns/vökvainntöku getur leitt til þess að líkaminn heldur frekar í vökva.

 

 

Aðrar vinsælar vörur

OFT KEYPT SAMAN