321 kr. / skammt

321 kr. / skammt
Best fyrir dagsetning 11/2026
GOLD STANDARD 100% WHEY er hágæða mysuprótein frá Optimum Nutrition, þekkt fyrir yfirburðar gæði og fjölbreyttar bragðtegundir. Hver skammtur inniheldur 24g af einangruðu mysupróteini, 4g af glútamíni og 5,5g af BCAA. Blandast auðveldlega í vatni og er glútenfrítt. Tilvalið fyrir þá sem vilja fjölbreytt notkun, hvort sem er í drykki, boozt eða matargerð.
Uppseld
Hágæða hreint mysuprótein !
Prótein er eitt af aðal orkuefnunum/næringarefnum (e. macros) sem að líkaminn þarfnast. Prótein gegnir mörgum mismunandi hlutverkum í líkamanum og eitt af þeim verkefnum er meðal annars að byggja upp/viðhalda vöðvamassa.
Við fáum prótein úr flest öllum fæðutegundum en helstu, vinsælustu og próteinríkustu próteingjafarnir eru t.d. egg, kjöt, kjúklingur, fiskur, mjólkuvörur, baunir ofl.
Mysuprótein (e. whey protein) er mjög góður próteingjafi, bæði hvað varðar hentugleika og frásog (nýtingu), það skiptist í þrjár mismunandi undirgerðir.
GOLD STANDARD 100% WHEY próteinið inniheldur próteinblöndu (e. whey protein blend) með öllum þessum gerðum af próteinum en inniheldur þó mest megnis einangraða mysurpróteinið (e. whey isolate) - það getur því verið mjög hentugt fyrir flesta alla, líka þá sem að fá stundum óþægindi/ónot í maganum eftir próteinshake.
GOLD STANDARD 100% WHEY próteinið frá Optimum Nutrition hefur verið eitt vinsælasta próteinið í heiminum í fjölda ára, enda er ON vörumerkið með yfir 30 ára reynslu í fæðubótarefna senunni og lengi verið þekkt fyrir yfirburðar gæði, bragðtegundir og traust áralangra viðskiptavina.
GOLD STANDARD 100% WHEY próteinið fæst í 5 mismunandi stærðum (31 gr. - 4,5 kg) og í fjölmörgum bragðtegundum sem er hver önnur betri, á borð við Double Rich Chocolate, Vanilla Ice Cream & Chocolate Peanut Butter.
Í hverjum skammt af GOLD STANDARD 100% WHEY próteininu (1 skeið) færðu 24 gr. af hágæða mysupróteini sem inniheldur allar lifsnauðsynlegu amínósýrurnar ásamt aukalega 4-5 gr. af Glútamíni.
Það er hægt að leika sér endalaust með GOLD STANDARD 100% WHEY próteinið. Hvort sem þú vilt drekka það eitt og sér hvenær sem er yfir daginn, setja út í boozt, próteinpönnsurnar eða hafragrautinn á morgnana.
GOLD STANDARD 100% WHEY próteinið er hægt að nota hvenær sem er yfir daginn eftir ykkar hentugleika !