Vörulýsing
DIGEST frá ENZYMEDICA
Hver kannast ekki við að verða þreyttur eftir þunga máltíð?
Margir hverjir upplifa óþægindi og uppþembu í maga eftir þungar máltíðir en slíkt tengist að öllum líkindum skorti á meltingarensímum. Líkaminn framleiðir sjálfur meltingarensím sem brjóta niður fæðuna en margt getur orðið til þess að hann framleiði ekki nóg.
Afleiðingar vegna skorts á meltingarensímum geta verið afar víðtækar og hugsanlega finnum við fyrir öðrum einkennum en ónotum í maga. DIGEST er frábær kostur fyrir þá sem finna fyrir ónotum í maga og meltingu eftir máltíðir.
- DIGEST er tvöfalt öflugra en DIGEST BASIC
- Án fylliefna, bindiefna eða annarra flæðiefna
- Mjólkur-, glúten og soyalaust
- Lítil hylki, hentar börnum
- Vegan
ENZYMEDICA hefur einkaleyfi á aðferð sem kallast Therablend en þá er blandað mörgum stofnum ensíma sem vinna á mismunandi pH- gildum og ná þau þannig að melta hvert orkuefni mun betur og hraðar. Ensím sem unnin eru með þessari aðferð hafa mælst á bilinu 5-20 sinnum öflugri og vinna meira en sex sinnum hraðar en önnur leiðandi meltingarensím.