FRÍ SENDING UM ALLT LAND!
Frír sendingarkostnaður þegar verslað er yfir 15.000 kr. eða meira
Tilboð mánaðarins!
Ný tilboð í hverjum mánuði.
Previous slide
Next slide

CREATINE – 1 KG

(1 umsögn viðskiptavinar)
Verslaðu fyrir 15.000 kr. í viðbót til að fá fría sendingu

9.990 kr.

200 SKAMMTAR 50 kr./á skammt

Á lager

Vörulýsing

KREATÍN MONOHYDRATE 1 KG

Hreint og braðglaust kreatín monohydrate frá Trained by JP.

5 gr. í hverri skeið.

Kreatín er eitt mest rannsakaðasta fæðubótarefni í heiminum og er eitthvað sem að við mælum með fyrir alla sem að æfa að taka.

Þegar við æfum göngum við á birgðirnar okkar og er gott að fylla á þær með því að bæta þessu í rútínuna. 5 gr. á dag ALLA daga.

  • Blandast auðveldlega
  • Eykur styrk og endurheimt
  • Vegan

Innihaldslýsing

Gæti innihaldið – Framleitt í verksmiðju sem meðhöndlar mjólk, egg, glúten, soja o.þ.h. vörur.

Innihaldsefni

Geymsluskilyrði – Geymið á þurrum og köldum stað.

Best fyrir – sjá dagsetningu á vöru.

Upprunaland – UK

Notkunarleiðbeiningar

Blandið einni skeið (5 gr.) út í 200 – 300 ml af vatni, hrærið, hristið eða blandið vel í 30 sekúndur eða þar til duftið er alveg leyst upp.

Pro tip – Taka kreatín alla daga, þótt þú sért ekki að æfa.

Á æfingadögum er gott að taka kreatín fyrir, á eða eftir æfingu.

Skeið innifalin. (5 gr. )

Algengar spurningar

Ég hef heyrt að ég þurfi að “hlaða” kreatín þegar ég byrja að taka það í fyrsta skipti eða eftir pásu, hvernig er best að gera það ? 

Það getur verið sniðugt að hlaða kreatínbirgðirnar fyrstu dagana. Þá tekurðu 5 gr., þrisvar – fjórum sinnum í dag, dreift yfir daginn, fyrstu 7 dagana. Eftir það tekurðu einn skammt (5 gr.) einu sinni á dag, alla daga (líka á þeim dögum sem þú æfir ekki).

Hinsvegar er þetta ekki nauðsynlegt, en við mælum með að hlaða kreatíni fyrstu 10 dagana með því að taka 10 grömm á dag af kreatíni, 5 gr. fyrir æfingu og 5 gr. eftir æfingu. Á hvíldardögum er hægt að taka 10 grömm saman – hvenær sem er yfir daginn.

Hvernig blanda ég kreatínið ? 

Kreatín er hreint- og bragðlaust efni og er þar af leiðandi ekkert sérstaklega gott eitt og sér út í vatn.
Við mælum með að blanda kreatín út í t.d. Pre Workout-ið fyrir æfingu, prótein shake-inn eftir æfingu eða út í annan drykk með góðu bragði (t.d. djús).

Þarf ég að taka Kreatín alla daga ? 

Já, við mælum með að taka kreatín alla daga – líka á þeim dögum sem þú æfir ekki.

Hvenær er best að taka kreatín ? 

Tímasetning á inntöku af kreatíni skiptir ekki mestu máli. Það er tilvalið að taka kreatín í kringum æfingar (hvort sem það er fyrir, á eða eftir) en ef það hentar ekki þá er hægt að taka það t.d. á morgnana.
Mestu máli skiptir að taka kreatín alla daga og auka vatnsinntöku.

Þarf að taka pásu á kreatíni ? 

Það er ekki nauðsynlegt. Kreatín er efni sem líkaminn framleiðir sjálfur ásamt því fáum við það úr ýmsum matvörum, þá helst frá rauðu kjöti.
Það er því óhætt að taka kreatín til lengri tíma en einnig er allt í lagi að taka pásur á nokkurra mánaða fresti í 2-4 vikur og byrja svo aftur.

Er til kreatín sem maður “vatnast” ekki af ? 

Kreatín getur aukið vatnsmagn inn í vöðvafrumum líkamans. Þetta er gott og þar viljum við hafa vatnið – inn í vöðvunum. Það gerir það að verkum að vöðvafrumurnar eru í betra vökvajafnvægi, þær verða tilbúnar í meiri átök á æfingum, ásamt meiri og hraðari endurheimt eftir æfingar.
Það er eðlilegt að þyngjast örlítið þegar maður byrjar á kreatíni.
Ef þú ert að upplifa að “vatnast” of mikið mælum við með að auka vatnsinntöku (því vatn skolar út vatni) og fylgjast með söltum- og steinefnum. Of lítið af söltum, steinefnum og vatns/vökvainntöku getur leitt til þess að líkaminn heldur frekar í vökva.

Aðrar vinsælar vörur

OFT KEYPT SAMAN

Einkunnir og umsagnir

Quality
20%
Price
20%
Service
20%

Metið af 01 viðskiptavinum

Raða eftir

  • zFPWdwPk

    Mr.

    1

    9 janúar, 2024

Leave feedback about this

Your email address will not be published.

Quality
Price
Service