Beta Alanine Powder, 200g
Markmið: Vöðvauppbygging, úthald
Kostir: Styður við og eykur úthald †, flýtir fyrir endurbata †, seinkar þreytutilfinningu †, eykur æfingagetu †
Sýnt hefur verið fram á vísindalega að Beta Alanín hjálpi notendum að afkasta meiru á erfiðum æfingum. Þetta veldur því að líkaminn aðlagast betur að æfingunum með auknum vöðvamassa og betra þreki. Þegar efnið er notað ásamt kreatíni gefur Beta Alanín okkur möguleika á enn meiri vöðvauppbyggingu og fitutapi. †
Notkunarleiðbeiningar: Beta Alanín er helst notað áður, á meðan og eftir æfingar. Ráðlagður dagsskammtur: 2–5 g.
Beta Alanín er vinsælt í „pre workout“ formúlum en notkun þess er þó ekki nauðsynleg fyrir æfingar til að það skili árangri.
Stærri skammtar af efninu geta valdið tilfinningu sem lýsir sér nokkurnvegin eins og náladofi eða kláði, þessi aukaverkun er skaðlaus og er hægt að losna við með því að skipta minni skammta (0.8-1g) nokkrum sinnum yfir daginn.
Þessi vara er framleidd í aðstöðu þar sem eftirtalin matvæli gætu ennig hafa verið unnin: Hveiti, mjólk, sojabaunir, fiskur, skelfiskur, og hnetur. Framleitt í Bandaríkjunum.
VIÐVÖRUN: Þessi vara er aðeins ætluð heilsuhraustum einstaklingum, 18 ára eða eldri. Notist ekki á meðan þungun eða brjóstagjöf stendur. Mælt er með að ráfæra sig við lækni áður en þetta eða önnur fæðubótarefni eru notið. Hættið samstundis notkun og hafið samband við lækni ef einhverjar óæskilegar aukaverkanir koma upp meðfram notkun þessarar vöru. Notist aðeins eins og ráðlagt er í leiðeiningum. Notist ekki ef innsigli hefur verið rofið. Geymist á köldum, þurrum stað. Haldist frá börnum.