Description
EYKUR LÍKAMLEGA FRAMMISTÖÐU Á ÆFINGUM
Kreatín Monohydrate er hentugt fyrir alla sem taka þátt í langvarandi eða öflugum æfingum og leitast við að bæta líkamlega frammistöðu. Kreatínið frá Applied Nutrition frásogast hratt og örugglega enda eitt hreinasta Creatine Monohydrate sem völ er á. Rannsóknir sýna að aukin kreatín inntaka getur hjálpað til við að seinka þreytu á æfingum, auka orku efnaskipti í vöðvafrumum og auka heildar þjálfunargetu líkamans.
Þetta kreatín frá Applied Nutrition er bragðbætt og fæst í tveimur frábærum bragðtegundum. Tilvalið til að taka eitt og sér eða blanda með öðrum efnum á borð við Pre Workout, Amínósýrur og/eða Electrolytes (Sölt- & steinefni).
Innihaldslýsing
Gæti innihaldið – Framleitt í verksmiðju sem meðhöndlar mjólk, egg, glúten, soja o.þ.h. vörur.
Innihaldsefni
Serving Size: 1 Scoop (5g) – Servings Per Container: 50
Creatine Monohydrate 4250 mg (per serving)
Geymsluskilyrði – Geymið á þurrum og köldum stað.
Best fyrir – sjá dagsetningu á vöru.
Upprunaland – UK
Notkunarleiðbeiningar
Blandið einni skeið (5 gr.) út í 180 – 240 ml af vatni, hrærið, hristið eða blandið vel í 30 sekúndur eða þar til duftið er alveg leyst upp.
Skeið innifalin.
Algengar spurningar
Ég hef heyrt að ég þurfi að “hlaða” kreatín þegar ég byrja að taka það í fyrsta skipti eða eftir pásu, hvernig er best að gera það ?
Það getur verið sniðugt að hlaða kreatínbirgðirnar fyrstu dagana. Þá tekurðu 5 gr., þrisvar – fjórum sinnum í dag, dreift yfir daginn, fyrstu 7 dagana. Eftir það tekurðu einn skammt (5 gr.) einu sinni á dag, alla daga (líka á þeim dögum sem þú æfir ekki).
Hinsvegar er þetta ekki nauðsynlegt, en við mælum með að hlaða kreatíni fyrstu 10 dagana með því að taka 10 grömm á dag af kreatíni, 5 gr. fyrir æfingu og 5 gr. eftir æfingu. Á hvíldardögum er hægt að taka 10 grömm saman – hvenær sem er yfir daginn.
Hvernig blanda ég kreatínið ?
Kreatín er hreint- og bragðlaust efni og er þar af leiðandi ekkert sérstaklega gott eitt og sér út í vatn.
Við mælum með að blanda kreatín út í t.d. Pre Workout-ið fyrir æfingu, prótein shake-inn eftir æfingu eða út í annan drykk með góðu bragði (t.d. djús).
Þarf ég að taka Kreatín alla daga ?
Já, við mælum með að taka kreatín alla daga – líka á þeim dögum sem þú æfir ekki.
Hvenær er best að taka kreatín ?
Tímasetning á inntöku af kreatíni skiptir ekki mestu máli. Það er tilvalið að taka kreatín í kringum æfingar (hvort sem það er fyrir, á eða eftir) en ef það hentar ekki þá er hægt að taka það t.d. á morgnana.
Mestu máli skiptir að taka kreatín alla daga og auka vatnsinntöku.
Þarf að taka pásu á kreatíni ?
Það er ekki nauðsynlegt. Kreatín er efni sem líkaminn framleiðir sjálfur ásamt því fáum við það úr ýmsum matvörum, þá helst frá rauðu kjöti.
Það er því óhætt að taka kreatín til lengri tíma en einnig er allt í lagi að taka pásur á nokkurra mánaða fresti í 2-4 vikur og byrja svo aftur.
Er til kreatín sem maður “vatnast” ekki af ?
Kreatín getur aukið vatnsmagn inn í vöðvafrumum líkamans. Þetta er gott og þar viljum við hafa vatnið – inn í vöðvunum. Það gerir það að verkum að vöðvafrumurnar eru í betra vökvajafnvægi, þær verða tilbúnar í meiri átök á æfingum, ásamt meiri og hraðari endurheimt eftir æfingar.
Það er eðlilegt að þyngjast örlítið þegar maður byrjar á kreatíni.
Ef þú ert að upplifa að “vatnast” of mikið mælum við með að auka vatnsinntöku (því vatn skolar út vatni) og fylgjast með söltum- og steinefnum. Of lítið af söltum, steinefnum og vatns/vökvainntöku getur leitt til þess að líkaminn heldur frekar í vökva.